cab8f9f9 083a 4c85 bb40 448e61004a15
Margrét Guðjónsdóttir

Fiskur með karrý í ofni

Einfaldur og góður fiskréttur
Tegund: Main Course

Innihald
  

  • 1-2 ýsuflök
  • 1/4 dós sveppir
  • nokkrar rækjur
  • rjómi
  • rifinn ostur
  • karrý
  • hveiti
  • hrísgrjón
  • mayonese

Aðferð
 

  1. Byrjið á að sjóða grjón í potti
  2. hveiti og karrý blandað saman
  3. fisknum velt upp úr hveitiblöndunnu
  4. fiskurinn steiktur aðeins á pönnu
  5. fiskurinn tekinn af pönnunni og rækjur og sveppir léttsteikt
  6. Þegar grjónin eru soðin eru þau sett í botninn á eldföstu móti
  7. 2-3 msk af mayonese , sveppasoð, smá sletta af rjóma og 2 tsk karrý hrært saman
  8. Fiskurinn settur yfir grjónin ásamt sveppum og rækjum
  9. Mayoneshrærunni helt yfir allt saman
  10. Gott að setja smá rifinn ost yfir
  11. 30 mín í ofni við 180 ℃
Margrét Guðjónsdóttir

Fiskur með grænmeti og ostasósu

Þessi er alveg frábær!

Innihald
  

  • 700-800 gr ýsuflök
  • 4-6 stk kartöflur
  • 4 stk gulrætur
  • 1/4 hluti blómkálshöfuð
  • 1 stk paprika
  • 30 gr smjör
  • 1/4 l rjómi
  • 1/2 dl mjólk
  • 100 gr rjómaostur kryddaður
  • 125 gr paprikuostur þessi kringlóttir
  • 1 tsk salt
  • 1/4 tsk pipar
  • 150-200 gr rifinn ostur

Aðferð
 

  1. kartöflur og gulrætur þvegnar og skornar í sneiðar. Blómkál í hríslur
  2. Smjör brætt á pönnu og grænmetið látið krauma í 4-5 mín. Síðan sett í eldfast mót
  3. fiskur skorinn í sneiðar og honum raðað ofan á grænmetið og salti og pipar stráð yfir
  4. paprika söxuð niður og síðan stráð yfir fiskinn
  5. Rjómi, mjólk og osti brætt saman og hellt yfir fiskinn
  6. Rifnum osti dreift ofan á
  7. Sett í 200℃ heitan ofn og bakað í 40-45 mín

Athugasemdir

Gott að hafa snittubrauð eða hvítlauksbrauð ásamt grjónum með 
Sigrún Ingólfsdóttir

Fiskur í orlý

Innihald
  

  • 100 gr hveiti
  • fiskur, t.d þorskur
  • 1-1½ tsk salt
  • 1 tsk lyftiduft
  • safi úr einni sítrónu
  • kalt vatn til að bleyta í hveiti

Aðferð
 

  1. Þeytið eggin vel saman
  2. hafið vatnið ekki meira en rétt til að bleyta í hveitinu
  3. pressið sítrónusafa og bætið í deigið, passa að það sé ekki of þunnt
  4. Skera fiskinn í bita setjið í deigið
  5. setja kókosolíu á pönnu eða venjulega olíu og hita að meðalhita
  6. takið bitana úr deiginu og steikið á pönnu
  7. setjið bitana í eldfast mót og haldið heitum í 100℃ heitum ofni
Sigrún Ingólfsdóttir

Paprikuosta og rjómasósufiskur

Innihald
  

  • 500 gr fiskur
  • ½ dós paprikusmurostur
  • ½ l rjómi
  • 1 paprika, smátt skorin

Aðferð
 

  1. Brytja fiskinn og setja í eldfast mót
  2. Léttþeyitð smurost, rjóma og klípu af salti saman
  3. Setjið yfir fiskinn
  4. Bakið í ca 30 mín viðp 150 ℃ þar til fallega ljós brúnt

Athugasemdir

Hægt að nota allar tegundir af smurosti í þennan rétt. Þá er ekki notuð paprika heldur það sem osturinn segir til um t.d. sveppir og sveppasmurostur.
Verði ykkur að góðu!
Scroll to Top