Go Back
Margrét Guðjónsdóttir

Fiskur með grænmeti og ostasósu

Þessi er alveg frábær!

Innihald
  

  • 700-800 gr ýsuflök
  • 4-6 stk kartöflur
  • 4 stk gulrætur
  • 1/4 hluti blómkálshöfuð
  • 1 stk paprika
  • 30 gr smjör
  • 1/4 l rjómi
  • 1/2 dl mjólk
  • 100 gr rjómaostur kryddaður
  • 125 gr paprikuostur þessi kringlóttir
  • 1 tsk salt
  • 1/4 tsk pipar
  • 150-200 gr rifinn ostur

Aðferð
 

  1. kartöflur og gulrætur þvegnar og skornar í sneiðar. Blómkál í hríslur
  2. Smjör brætt á pönnu og grænmetið látið krauma í 4-5 mín. Síðan sett í eldfast mót
  3. fiskur skorinn í sneiðar og honum raðað ofan á grænmetið og salti og pipar stráð yfir
  4. paprika söxuð niður og síðan stráð yfir fiskinn
  5. Rjómi, mjólk og osti brætt saman og hellt yfir fiskinn
  6. Rifnum osti dreift ofan á
  7. Sett í 200℃ heitan ofn og bakað í 40-45 mín

Athugasemdir

Gott að hafa snittubrauð eða hvítlauksbrauð ásamt grjónum með