Smákökur

Margrét Guðjónsdóttir

Kornflexkökur

Uppáhalds smákökuupskrift Margrétar

Innihald
  

  • 200 gr smjörlíki mjúkt
  • 2 dl sykur
  • 2 dl púðursykur
  • 4 dl hveiti
  • 1/2 tsk salt
  • 1 tsk natron
  • 2 tsk vanilludropar
  • 4 dl kornflex
  • 3 dl haframjöl
  • 3 dl kókosmjöl
  • saxað súkkulaði eftir smekk

Aðferð
 

  1. Öllu hrært saman og sett með teskeið á pappírsklædda bökunarplötu. Bakað í nokkrar mínútur við ca 180℃
images
Dísa

Engiferkökur

Þessar smákökur bakaði mamma alltaf fyrir jólin. Þegar ég fór að búa hélt ég í hefðina og gerði þær líka. Dásamlegar með ískaldri mjólk!

Innihald
  

  • 250 gr Smjörlíki (mjúkt)
  • 2 bollar sykur
  • 1/2 bolli sýróp
  • 4 bollar hveiti
  • 1 1/2 tsk matarsódi
  • 2 tsk kanill
  • 2 tsk engifer
  • 2 tsk negull

Aðferð
 

  1. Smjörlíkið mulið
  2. Hitið sýrópið yfir vatnsbaði
  3. setjið öll þurrefni í skál og hrærið vel saman
  4. Sýrópinu hellt saman við þurrefnin og hrært í á meðan, síðan er eggjunum bætt við
  5. Þegar búið er að hræra allt létt saman, þá er deigið hnoðað í höndunum þar til það er sprungulaust.
  6. Geymið deigið á köldum stað í nokkra klukkutíma eða yfir nótt
  7. Hitið ofninn í 215℃
  8. Skiptið deiginu niður í nokkra hluta og búið til lengjur (pylsur)
  9. Skerið niður í hæfilega bita og raðið á pappírsklædda bökunarplötu. Passið að hafa ekki of þétt. Gott að ýta aðeins niður með gaffli.
  10. Bakið í örfáar mínútur (7-8 mín)
Gíslína Sigurbjartsdóttir

Kúrenukökur

Sagan segir að þessar sé einstaklega góðar, enda ekki við öðru að búast frá henni Ínu

Innihald
  

  • 300 gr hveiti
  • 200 gr smjörlíki
  • 200 gr sykur
  • 75 gr kókosmjöl
  • 1 tsk natron
  • 2 msk sýróp
  • 5-6 msk kúrenur eða smátt saxaðar rúsínur

Aðferð
 

  1. Öllum þurrefnum blandað saman ásamt smjöri
  2. Eggið þeytt og sett út í ásamt sýrópinu
  3. Hnoðað og mótað í litlar kúlur og þrýst á með gaffli
  4. Bakað við 200 ℃ í nokkrar mínútur
Aðalbjörg og Jóna amma

Hálfmánar frá Aðalbjörgu og Jónu ömmu

Þessar gómsætu smákökur bakar hún Guðlaug Jónsdóttir alltaf á aðventunni

Innihald
  

  • 500 gr Hveiti
  • 200 gr Sykur
  • 200 gr smjörlíki
  • ½ tsk kanill
  • ½ tsk kardimommur
  • ½ tsk Hjartasalt
  • 1 tsk lyftiduft
  • 2 dl mjólk
  • rabarbarasulta

Aðferð
 

  1. Öllum hráefnum hnoðað saman
  2. Deigið flatt út með kökukefli, frekar þunnt
  3. Rabarbarasultu smurt yfir
  4. Skorið út með hringlaga móti eða glasi
  5. Hálfmánunum lokað og aðeins ýtt yfir endana með gaffli
  6. sett á pappírsklædda ofnplötu
  7. Penslað yfir með mjólk og smá sykri stráð yfir áður en sett í ofn
  8. Bakað við 180 ℃ þar til þeir eru gullinbrúnir
Scroll to Top