Smjörlíkið mulið
Hitið sýrópið yfir vatnsbaði
setjið öll þurrefni í skál og hrærið vel saman
Sýrópinu hellt saman við þurrefnin og hrært í á meðan, síðan er eggjunum bætt við
Þegar búið er að hræra allt létt saman, þá er deigið hnoðað í höndunum þar til það er sprungulaust.
Geymið deigið á köldum stað í nokkra klukkutíma eða yfir nótt
Hitið ofninn í 215℃
Skiptið deiginu niður í nokkra hluta og búið til lengjur (pylsur)
Skerið niður í hæfilega bita og raðið á pappírsklædda bökunarplötu. Passið að hafa ekki of þétt. Gott að ýta aðeins niður með gaffli.
Bakið í örfáar mínútur (7-8 mín)