Go Back
8b43b84e f782 4444 b823 a8e97022d966
Bára Ósk Georgsdóttir

Biscoff ostakaka

Þessa verða allir að prófa
Tegund: Dessert, ostakaka

Innihald
  

Botn
  • 300 gr Biscoff kex
  • 100 gr smjör brætt
Fylling
  • 500 gr rjómaostur
  • 150 gr Biscoff krem
  • 100 gr flórsykur
  • 200 ml rjómi
Krem
  • 200 gr Biscoff rem
  • smá mulningur af Biscoff kremi

Aðferð
 

Botn
  1. Kexið sett í matvinnsluvél eða mulið fínt á annan hátt. Smjörið brætt og blandað saman við. Blandan sett í form og sett í kæli í 20-30 mínútur. Það er líka hægt að gera botninn með 250 gr af kexi en þá verður hann kannski aðeins of þunnur.
    610zucdga l. ac sl1500
Fylling
  1. Rjóminn þeyttur þar til hann er orðinn léttur. Rjómaostur, Biscoff krem og flórsykur hrært saman í annarri skál. Þeytta rjómanum blandað saman við og sett yfir botninn.
    f4801l.7455be.xl
Krem
  1. Kremið brætt rólega yfir vatnsbaði þar til það er orðið vel fljótandi. Síðan er því hellt yfir ostakökuna. Smá kexmulning stráð yfir. Sett í kæli í amk 4 tíma

Athugasemdir

Verði ykkur að góðu!!