
Bára Ósk Georgsdóttir
Biscoff ostakaka
Þessa verða allir að prófa
Tegund: Dessert, ostakaka
Aðferð
Botn
- Kexið sett í matvinnsluvél eða mulið fínt á annan hátt. Smjörið brætt og blandað saman við. Blandan sett í form og sett í kæli í 20-30 mínútur. Það er líka hægt að gera botninn með 250 gr af kexi en þá verður hann kannski aðeins of þunnur.

Fylling
- Rjóminn þeyttur þar til hann er orðinn léttur. Rjómaostur, Biscoff krem og flórsykur hrært saman í annarri skál. Þeytta rjómanum blandað saman við og sett yfir botninn.

Krem
- Kremið brætt rólega yfir vatnsbaði þar til það er orðið vel fljótandi. Síðan er því hellt yfir ostakökuna. Smá kexmulning stráð yfir. Sett í kæli í amk 4 tíma
Athugasemdir
Verði ykkur að góðu!!
