4. Kafli
Fie

ac2e1571 8029 4a76 b77a f577b4b124ba Í öllum hillum á vinnustað Fie mátti sjá leirlist. Hún leit yfir verkin sín stolt, en hún var virt í sínu fagi og seldi list sína út um allan heim. Fie var orðin frekar búttuð en hafði verið afar grönn, ung kona. Ljósu lokkarnir voru löngu farnir og hún komin með stutt ljósgrátt hár. Hún er fallega útitekin og hendur hennar bera þess merki að hafa unnið mikið, þær eru þrútnar og á hægri hönd voru mörg lítil ör. Á yfirborðinu var líf Fie slétt og fellt, en innra með henni ólguðu gömul sár sem aldrei myndu gróa til fulls. Aðalskýringin var sú að 17 ára neyddist Fie til að gefa frá sér frumburð sinn, Maritu, eftir einnar nætur kynni með manni sem hún vissi nánast engin deili á. Færeyska ljósmóðirin sem tók á móti Maritu ættleiddi hana og hún hafði því alist upp í Færeyjum, en nú bjó Marita hins vegar á Íslandi með manni og tveimur börnum. Samband mæðgnanna hafði verið upp og ofan eins og við var að búast, þær höfðu aldrei búið í sama landi. Bæði bjó Fie í Danmörku og kom seint inn í hennar líf. Sárin fóru samt að gróa hjá Fie smám saman. Um daginn hafði Marita hringt og boðið Fie heim til sín á Íslandi. Ditmar, eiginmaður Fie, var að koma heim úr vinnu þegar Fie sagði honum tíðindin og spurði hann álits. Ditmar, sem var alltaf þolinmóður og jákvæður, var mjög hrifinn af tilhugsuninni um að Fie hitti
Marite, barnabörnin, Torfa og fólkið hans. Nú svo fengi hún ferðalag í ofanálag og það ekki
af verri endanum. Þau töluðu saman um hversu yndislegt það hlyti að vera á Íslandi, það
væri allt svo friðsælt og fallegt.
Hjónakornin hringdu á Skype í yndislegu dætur sínar Ullu og Anettu og segir Fie þeim
tíðindin. Dæturnar eru mjög hrifnar af þessu, þrátt fyrir að þær hafi nánast ekkert samband
við Maritu, þá bera þær henni fallegan hug. „Mamma, þetta verður stórkostlegt ferðalag,“
segir Ulla og ber þeim systrum líka saman um að það sé svo margt að sjá á Íslandi. Á skjáinn
kemur Hans, sonur Ullu, og segir brosandi: „Halló amma, afi“ og svo er hann farinn að leika
sér.
Einhvern veginn var það nú þannig að þegar Marita átti í hlut, jafn mikið yndisleg og hún
var, þá langaði Fie að hafa hana meira hjá sér. Hún gat illa sætt sig við að það liði jafnvel
mjög langur tími þar til hún hitti hana eða heyrði í henni næst. Það sem hjálpaði Fie hvað
mest var að eiga góðan mann og vinkonu.
Ein besta vinkona Fie var Amanda, hún var ekki46cbea7e bdaa 46b7 a2c2 bf6ee3765dbd jafnhrifin af ferðalaginu og fjölskylda Fie. Þær stöllur höfðu kynnst í listnámi í Kaupmannahöfn og verið trúnaðarvinkonur, þær höfðu deilt sorgum og gleði í lífi hvor annarrar. Vinkonurnar voru að mörgu leyti ólíkar en Fie var viðkvæm og mátti við litlu til að verða miður sín. Amanda var sterkari en hún gat hins vegar verið algert skass einstaka sinnum og komið með sína meiningu á ógnarhraða og með hávaða, en hún meinti alltaf vel. Amanda var samt sem áður orðin heldur pirruð á að hlusta á vinkonu sína tala nær endalaust um Maritu og vonbrigðin yfir hvað sambandið var í raun lítið.

Fie fer að pakka niður, hún spilar Bee Gees í botn, eins og hún gerir alltaf þegar hún er í
stuði og dillar sér og syngur „Stayin Alive – Stayin Alive“. Henni krossbregður þegar hún
lítur aftur fyrir sig en í dyragættinni stendur Amanda sjálf eins og skass og segir svo lágum
skipandi rómi „Ísland.is! Þú ferð ekki.“ „Nú, þetta er nú bara heimsókn og við Marita höfum
bara gott af því að hittast,“ segir Fie.
„Hvað ertu að hugsa? Að geta farið að leita uppi fortíðina án þess að það hafi einhverjar
afleiðingar?“ segir Amanda hvæsandi.
„Ég er bara að heimsækja Maritu, og kynnast barnabörnunum mínum,“ svarar Fie. „Nei, ég
þekki þig betur en svo, þú vilt fá hana hingað í Danaveldi,“ segir Amanda og gengur svo að
Fie og segir: „Pass pa dit hjerte Margret so ingen kommer og nipper det fra dig.“ Svo strunsar
hún út og skellir á eftir sér.
Fie þótti samt vænt um þessa vinkonu sína sem var svo sannarlega ekki allra og sífellt að
vitna í Margréti Danadrottningu. Þær höfðu hjálpað hvor annarri í áranna rás og hún hafði
jú þurft að hugga hana hvað oftast þegar væntingarnar til sambands þeirra Maritu fóru ekki
saman við raunveruleikann.

Scroll to Top