9. Kafli
Eldgos
Snemma aðfararnætur 14. apríl benti allt til þess að gos væri að hefjast undir Eyjafjallajökli.
Þetta var staðfest snemma um morguninn eftir að flugvél Landhelgisgæslunnar hafði flogið
yfir jökulinn. Almannavarnakerfið var virkjað og ákveðið að rýma nær sveitir jökulsins
samkvæmt gildandi viðbragðsáætlunum.
Sprengjugosið sem hófst í Eyjafjallajökli að morgni dags þann 14. apríl 2010 var innan í
topp-öskju fjallsins undir um það bil 2-300 metra þykkum ís. Kvikan hafði brætt ísinn og
vatnið steyptist í jökulhlaupum niður hlíðar fjallsins. Gosstrókurinn reis í tæpa 10 km hæð
hlaðinn fíngerðri ösku sem barst hratt langar leiðir
Að morgni 14. apríl komu hlaup bæði niður suðurhlíðar jökulsins, í farvegi Svaðbælisár sem
og niður Gígjökul að norðanverðu og þaðan í farveg Markarfljóts. Mikið kapp var á lagt að
bjarga brúnni yfir Markarfljót og vegurinn því rofinn beggja megin hennar. Þar með var
þjóðvegi nr. 1 lokað og engin umferð leyfð. Það hafði því verið rétt ákvörðun að Fie yrði
kyrr á Syðri Hóli, þrátt fyrir allt.
Og nú komst hún hvorki lönd né strönd. Það gat ekki verið henni auðvelt. Föst á ókunnum stað með fólki sem hún þekkti lítið, nýbúin að hitta mann sem umturnaði allri fortíð hennar og framtíð þessarar dóttur, sem hún þráði svo að þekkja.
